23.3.2007 | 20:30
Og þá er komið að því...
Já, þá er dagurinn að renna upp. Mamma gamla búin að vera á sjúkrahúsi í næstum 4 mánuði og meira eða minna síðan í haust. Búin að fara í 2 uppskurði á tímabilinu og vera inni á gjörgæslu nokkrum sinnum. En það á að útskrifa hana af spítalanum á sunnudaginn, húrra... En hún getur ekki séð um sig sjálf. Er hálf máttlaus í löppunum og kemst ekki hjálparlaust um. Svo er hún líka komin með stoma poka. Þannig að við systkinin ætlum að reyna að skiptast á að vera hjá henni þegar maðurinn hennar er að vinna. ( ekki pabbi okkar ). Og mitt fyrsta skipti verður að ná í hana á sunnudaginn eftir hádegið og vera hjá henni til ca. 21.00. Kerlingar greyið er hálf erfið, er ekki vön að geta ekki séð um sig sjálf og er komin á hálfgert mótþróaskeið. Vill ekki borða og drekkur lítið. Og allir eru svo vondir þegar á að reyna að ná henni framúr rúminu. Þannig að mér sárkvíður fyrir verkefninu. Og ef ég þarf að skipta um stoma poka..... Ógeð, en læt mig hafa það ef þörf krefur. Ég sem get ekki hreinsað upp æluna eftir köttinn. En það kemur kannski í ljós, hvað í mér býr. Held ég geti höndlað allt, ef enginn annar er til staðar Hef allavega gert það hingað til
Nóg í bili... Bara Hrund og Kári þurfa ekki að kvitta
Um bloggið
barabull
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.