11.8.2007 | 19:56
Detta mér allar dauðar.....
Var að fá einkunina úr almennu sálfræðinni. Það er greinilegt að sú gamla er ekki alveg dauð úr öllum æðum. Fékk heila 7,2 ég sem hafði áhyggjur af að ná ekki 5. Það var dansaður stríðsdans við þessar fréttir. Nú er bara eftir að fá niðurstöðurnar úr heilbrigðisfræðinni, gekk asskoti vel í prófinu, býst við alla vega 7+. Síðan er síðasta prófið á mánudaginn og þarf ég þá að kljást við þroskasálfræðina, sem er álíka torf og sú almenna. Þannig að nú skal nefinu klesst ofaní skrudduna, má ekki fá undir 7 í þessu heldur. Ágætt að karlinn sé lítið heima þessa dagana. Greyið var að koma úr 3ja daga ferð um suðurlandið þar sem hann var að guida grikkjahóp, síðan fer hann með hópinn með flugi til Akureyrar eldsnemma í fyrramálið. Þannig að ég fæ góðan frið við lærdóminn.
Áfram með bókina......
Um bloggið
barabull
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.