5.1.2008 | 23:08
Skaupið enn og aftur
Var að horfa á endursýninguna og fannst þetta alveg brilljant. Frumsýningin fór svolítið fyrir ofan garð og neðan vegna skellihláturs fjölskyldumeðlima.
Er ekki sammála að þetta Lost þema hafi verið glatað (hef aldrei horft á þá þætti), Var þetta ekki bara vísun í að innflytjendur sem lenda hérna óvart og verða gjörsamlega "Lost" í þessu þjóðfélagi.
Fannst handritshöfundar taka á flestum hitamálum 2007. Og guðsfegin að bölvað stjórnmálakjaftæðið fékk frí í ár.
Annars held ég að ekkert skaup hafi verið gott, nema kannski í minningunni. Allavega í gegnum árin hafa alltaf verið einhverjir sem höfðu hátt og töldu skaupið vera mjög ófyndið. En common, þeir sem höfðu ekki gaman af þessu skaupi, eru húmorslausir gagnvart þjóðarsálinni og sjálfum sér.
Góðar stundir
Um bloggið
barabull
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta var ágætis skaup.Sá það í fyrsta skifti í kvöld. Eina sem truflaði voru flugeldar.
Hólmdís Hjartardóttir, 5.1.2008 kl. 23:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.