Færsluflokkur: Bloggar

Í pásunni

Í þetta skiptið voru þau Guðbjörg og Jögvan langbest. Þau hafa sviðsöryggið og röddina. Ekki að sjá á þeim að þau séu stressuð eða neitt. Gaman að hnútukasti dómaranna. Enn á þeirri skoðun að Gylfi (mjög góður í karokí) eða Inga (flottur sveitasöngvari) eigi að fara heim. Ef annaðhvort þeirra fær ekki reisupassann, nenni ég ekki að fylgjast meira með...Angry

X Factor

Jæja, þá fer factorinn að byrja. Við erum ákveðin í því hjónakornin, að ef Gylfi eða Inga verði ekki send heim í kvöld, þá nennum við ekki að horfa lengur. Þetta er búið að vera þvílikur fáráðnleikur. En vitið þið að Eyvör Pálsdóttir, færeyski söngfuglinn og Jögvan sæti eru par.... Þau allavega sváfu saman á hóteli síðasta föstudag. En þið vitið, alveg bannað að kjafta frá.Pinch

Meira eftir showið


Er bara rasandi...

Var að heyra í fréttunum að foreldrar væru ekki sáttir við inngrip kirkjunnar í skólum.

Er þetta ekki kallað vinalínan eða eitthvað svoleiðis. En mörg börnin okkar eiga í erfiðleikum. Skiptir það máli hvaðan gott kemur? Mér finnst þetta mjög gott framtak, börnin okkar fá tækifæri á að tjá sig við óvilhallan aðila.Foreldrar eru oft of upptekin til að hlusta á barnið. Ég skil ekki þessa foreldra sem setja sig á móti þessu. Ef einhverjir eru tilbúnir að kenna börnum samkend er það bara gott mál. Mér finnst að þetta eigi virkilega rétt á sér á þessum síðustu og verstu tímum. Þeir sem þjóna Guði eru alltaf að reyna að hjálpa. Og það skiptir ekki máli hvað þinn Guð heitir. Guð er bara nafn á þinni innri góðvild. Alveg eins og Satan er nafn á þínum dökku hliðum. Við öll höfum okkar góðu og slæmu hliðar, það er víst mannlegt. En ef við öll leggjumst á eitt, reyna að vera góð við hvort annað, þá held ég að lífið yrði mikið  betra


Veikasti hlekkurinn

Sælinú...

Hef stundum verið að pæla... Þar sem við öll stundum vinnu. Hvernig er þitt viðhorf gagnvart þinni vinnu? Ertu bara þarna til að fá launin  Smile Mitt viðhorf er þannig, eftir að hafa verið með fullt að útlendingum í vinnu, sem tala lítið sem ekkert , á þeim tungumálum sem við skiljum. Þetta er í langoftast tilvikum besta fólk. Ok, ég viðurkenni að ég er í stjórnunar hlutverki, Mörg okkar eru greinilega ekki að skilja mikilvægi hvers og eins á vinnumarkaðinum En fyrirtæki er eins og keðja... Og engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinnWoundering  Og ef þú ert ekki að gera þitt besta, þá ertu kannski veiki hlekkurinn


Partýið búið

Þá er maður búinn að halda upp á afmælið með glans...

Ætlaði að sofa vel út á laugardaginn... en var vakin hálf 9. Auðvitað vinnan... Þau geta greinilega ekki verið án mínWink Og var ómögulegt að sofna aftur. Þannig ég á fætur, las blöðin og fékk mér grænt te. Svo urðu undur og stórmerki. Eiginmaðurinn var kominn á fætur klukkan 9. Ég hélt hreinlega að hann væri veikur, hann er vanur að sofa allavega til hálf ellefu um helgar. Þannig að eftir blaðalestur og heita drykki, fórum við í að taka til og þrífa fyrir kvöldið. Og kláruðum það dæmi fyrir hádegiSmile Svo var ákveðið að á meðan hann fór að klára að versla, að ég færi að kíkja á mömmu upp á spítala á meðan. Hún var bara fjallhress. En þá hringdi símminn aftur "vinnan" Þurfti að koma þar aðeins við á heimleiðinni. Þannig að við vorum ekki að koma heim fyrr en um hálf fjögur. Þá var eldamennskan kom í smá tímaþröng. En þetta reddaðist allt. Í forrétt voru sjávarrétta tartalettur (en ég borða ekki svoleiðis) Þær voru greinilega mjög góðar, þar sem allir fengu sér tvær eða þrjár. Aðalrétturinn voru grilluð lambalæri ( já, við erum löngu byrjuð að grilla aftur) Annað var kryddað með blóðbergi og einiberjum, hitt var með rósmarin og hvítlauk. Svo var sósan alveg einstök, soðið niður allskonar villijurtir, bætt með rjóma og þvílíkt góðgæti. Svo voru bara ostar  kex, sulta og ber í eftirrétt. En allir skemmtu sér vel og síðustu gestirnir voru að fara um miðnættið. En ég og mitt svefnleysi. Var vöknuð un 9 morguninn eftir, sem var bara alveg ágætt. Búin með uppvaskið og tiltekt fyrir hádegi...afturJoyful Þannig að restin af deginum fór í afslöppun. Æðislegt

Meira seinna, fyrir ykkur sem nennið að lesa Barabull


Afmæli

Jæja, þá er allt að fara á fullt í undirbúniginn fyrir afmælið mitt. Ég hef ekki haldið upp á afmælið mitt síðan ég varð tvítug, þannig að það er kannski kominn tími á smá veislu. Við ætlum að vera með matarboð á laugardagskvöldið fyrir 10-15 manns. Og þar sem ég er svo vel gift, ætlar ektamakinn að sjá um matseldina. Ég verð bara í rólegheitum að dekka upp, fara í klukkutíma freyðibað og allsherjar afslöppun. "Bliss". Annars er þetta búin að vera ansi strembin vika í vinnunni. Er með mikið af nýju fólki sem þarf að fylgjast mjög vel með, svo ekki séu nein glappaskot. Hef verið komin í draumalandið uppúr 10 öll kvöld, alveg búin áþví. Þannig að maður er bara farinn að hlakka til helgarinnar. Annars verður ekkert skemmtilegt að rölta í vinnuna í fyrramálið, ef veðurspáin gengur eftir. Snjókoma og hvasst = hríð. Eða jú, það verður skemmtilegt, ég elska að labba úti í hríð. Alltaf gott fyrir sálina að berjast við náttúruöflinGrin . Og þakka ykkur elskurnar sem hafið  nennt að lesa bullið mitt og haft sambandHeart  Meira eftir afmælisveislu

Það er kalt

Þvílíkur ógeðslegur kuldi undanfarið. Ég fer í flís og kuldagalla á morgnana og labba í vinnuna, ca 12 min. Samt er ég skjálfandi. Sérstaklega kalt í morgun. 8 stiga frost og nokkur vindur. Hélt á tímabili að nefið væri dottið af mér. Fór ekki að hitna fyrr en ég var búin að fá mér heitan bolla af grænu tei, helst fjóraGrin  Síðan var ég að skoða veðurspána og það á að fara að snjóa á föstudag og ekkert lát á því næstu dagaCrying   Ég sem á enga almennilega vetrarskó W00t Afhverju býr maður á þessu guðsvolaða skeri? Aldrei almennilegt veður. Ég vil fá almennilegan vetur með almennilegum stórhríðum. Ekki vorveðri og svo frostum þess á milli. Síðan vil ég fá gott sumar. Ekki bara rigningu og hitinn rétt um 10 stig og snjókomu í júníAngry

Riðuveikin

Var að hlusta á frétt um riðuveikina í rollunum áðan. Þessi sjúkdómur virðist stinga sér niður hér og hvar, sama hvað er gert í því að reyna að hefta útbreiðsluna. Þá fór ég að hugsa til baka, þegar ég var krakki að alast upp í sveitinni. Stundum fékk ein og ein rollan svona riðu, en það var bara kallað súrheysveiki. Ef henni batnaði ekki á nokkrum dögum, var henni bara fargað. Þannig að ég var að hugsa, hvort margir bændur tilkynni ekki ef grunur um sjúkdóminn er til staðar. Ef svo er, þá lenda alltaf þessir heiðarlegu bændur í því að þurfa að skera allt féð sitt, sem er mjög sárt. En svo er alltaf þessi möguleiki að þetta sé óþarfa taugaveiklun, þar sem þetta var alls ekki bráðsmitandi, alla vega heima hjá mér, ef þetta var þá sami sjúkdómurinn.

Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt

Var að horfa á fréttirnar á stöð 2. Allíeinu... kemur ekki bara viðtal við hann Óla frænda, eins og hann er kallaður á mínu heimili, í sambandi við unglingaheimilið í Kópavogi. Ég fekk staðfest frá bróður hans rétt áðan, að Ólafur Einarsson var vistaður þarna um tíma. Ég þekki nokkuð vel til þessara fjölskyldu, þarsem áðurnefndur Ólafur er föðurbróðir sonar míns. En hvað geta fréttamenn gengið langt??? Þessi Óli er frekar þroskaheftur... hann leit samt frekar út fyrir að vera alki... sem hann er ekki. Eftir venjulegan barnasjúkdóm um eins árs gamall, varð hann svona. Hálfblindur og erfiður. Þegar hann varð unglingur, var hann alltaf að stinga af. Og foreldrarnir öll kvöld úti að leita.

Þau áttu yngri börn, sem þurftu sína athygli og eitt eldra. Þetta með sem hann sagði að hann hefði aldrei fengið skýringar á því, að hann hafi verið vistaður þarna, er þroskahömlun hans að kenna. Hann áttar sig ekki á því að bræður hans þurftu líka umhyggju. En ég er alveg viss um að Tóta og Raggi heldu að þau væru að gera það besta í þessari stöðu.Þau voru alltaf yndisleg, eins og hinir synirnir.


bara ánægð

fullt af heimsóknum í dag... en bara eitt kvittCrying En.... kominn fimmtudagur, sem táknar að ég þarf ekki að elda kvöldmatinn næstu fjóra dagaWink. Makinn er nefnilega kokkurinn á heimilinu, en hann er í kvöldskóla þrjú kvöld í viku og er venjulega ekki kominn heim fyrr en tíu. Þetta er auðvitað útíhött, ég grasekkja öll sumur og líka veturinn... bara jók. Grey kallinn er í fullri vinnu og í tveimur skólum, hann alveg útúrþreyttur. Bara hata það að elda, samt er þetta ekki svo mikið mál. Er bara ein að væblast með sextán ára ungling... eða meðling.... Sem er raunar svolítið mikið matvandur. Hann er um 165 cm á hæð en ekki nema rúmlega 40 kíló. Hann hefur alltaf  verið  grannur, en það er hálf óhuggulegt, þegar hann liggur á bakinu þá getur maður næstum talið hryggjaliðina.

Hlakka til helgarinnar... Hef átt erfitt með svefn undanfarið... reyna að sofa til hádegis báða dagana. Það er hundleiðinlegt að vakna milli 3 og 4 og sofna svo ekki aftur, fyrr en um hálftíma áður en klukkan hringir. Samt er ég vöknuð ekki seinna en 10 um helgar. Nema ég sé kölluð á bakvakt, þá er ég í draumalandinu þegar síminn hringir.

Hafið þið það öll sem best... Þangað til næst... 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

barabull

Höfundur

Fishandchips
Fishandchips

Er bara á besta aldri. 2 krakkar, misjafnlega uppkomnir, kall og 2 kettir á heimilinu. Finnst bara gaman að bulla smá og hafa samskipti við allskonar fólk

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 381

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband