17.3.2008 | 01:00
Þoli ekki þegar útpæld færsla "púff" hverfur bara
Sennilega misskilningur á milli mín og tölvunördanna. Kann lítið meira en á lyklaborðið. Hef samt farið á nokkur tölvunámskeið og tölvuáfanga. Skrýtið, fæ alltaf hæstu einkunn á prófunun. Já, gleymdi einu, fljót að tileinka okkur námsefnið en við erum svo fljót að gleyma, komin á þennan aldur.
Svo þegar maður er loksins búinn að læra eitthvað varðandi þessar tölvur, þá kemur ný útfærsla. Og þá þarf að byrja upp á nýtt.
Er bara að bulla... Ekkert eldhús, allt í ryki og skít. Þarf að hafa nóg að kaffi og meðí, iðnaðarmenn vinna ekki án þess. Er ekki að grínast, en ofaní 2 iðnaðarmenn fer kaffipakki á dag.....
Svo á meðan heimilið er undirlagt, þá er ég auðvitað í atvinnuviðtölum. Reyni að finna einhver föt sem eru ekki grá af ryki, og að finna andlitsgræjurnar er smá mál. En tek þessu öllu með stólískri ró og segi sjálfri mér að "góðir hlutir gerast hægt".
Um bloggið
barabull
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.